Hæ hó jibbí jei og jibbí jei, það er ekki kominn 17.júní en við hittumst nokkrar í kvöld! Aldís, Björg, Sigurveig, Heiðrún, Hjördís og Tinna skelltu sér á Ítalíu að borða, röltu sér svo yfir á Sólon í desert og kaffi með því. Rosalega gaman og takk kærlega fyrir kvöldið stelpur mínar! Nú erum við að kíkja á myndir heima hjá Sigurveigu og ákváðum að henda inn smá færslu og gera tilraun með að setja inn myndir!